Tvöfalt ræktunarhús 13,2m²
Tvöfalt Bambahús 13,2 m²
Verð: 969.000 kr. með vsk.
Fullbúið ræktunarhús með mold, flutningi og uppsetningu innan höfuðborgarsvæðisins. Allt innifalið í verðinu.
Íslenskt, sterkbyggt ræktunarhús úr endurnýttum IBC einingum, hannað fyrir íslenskar aðstæður.
Tvöfalt Bambahús er samsett úr tveimur húseiningum og býður upp á rúmgóða og þægilega vinnuaðstöðu fyrir ræktun á grænmeti, kryddjurtum og blómum.
Innbyggð gróðurker í þægilegri vinnuhæð auðvelda umhirðu plantnanna. Húsið nýtir rýmið á tveimur hæðum og gefur möguleika á fjölbreyttri ræktun.
Stærðir
Breidd: 3,30 m
Lengd: 4,00 m
Hæð: 2,22 m
Grunnflötur: 13,2 m²
Ræktunarsvæði: um 18,6 m² á tveimur hæðum
Átta innbyggð gróðurker
Helstu kostir
Sterk galvaníseruð stálgrind.
Polykarbónatklæðning.
Ræktunarsvæði á tveimur hæðum sem nýtir plássið vel.
Átta innbyggð gróðurker í þægilegri vinnuhæð.
Rúmgóð og þægileg vinnuaðstaða við ræktun og umhirðu.
Loftgluggi með stormjárni fylgir húsinu.
Ný álhurð fylgir húsinu.
Hægt að stækka húsið síðar með viðbótareiningum.
Endurnýting IBC eininga sem skapar ný verðmæti innanlands.
Einföld og fljótleg uppsetning.
Hönnun sem hefur verið reynd við íslenskar veðuraðstæður.
Verð og afhending
969.000 kr. með vsk.
Innifalið í verðinu er:
Fullbúið tvöfalt Bambahús.
Innbyggð gróðurker.
Loftgluggi með stormjárni.
Ný álhurð.
Um 1.600 kg af mold í gróðurkerin.
Flutningur og uppsetning innan höfuðborgarsvæðisins.
Kaupandi þarf aðeins að tryggja slétt og aðgengilegt undirlag þar sem húsið á að standa.
Aðrir afhendingarmöguleikar
Óski kaupandi eftir öðrum afhendingarskilmálum er hægt að fá sérstakt tilboð.
Hægt er að fá húseiningarnar afhentar á sérhannaðri flutningskerru og sjá sjálfur um flutning, samsetningu og mold í gróðurkerin.
Einnig er hægt að semja um einstaka þjónustuþætti, svo sem flutning, uppsetningu, afhendingu á mold eða fyllingu gróðurkerja.
Með því að sjá sjálfur um hluta verkefnisins getur verðið lækkað.
Við tökum einnig að okkur lengri flutninga og uppsetningu um allt land samkvæmt sérstöku tilboði.
Stækkun á eldra Bambahúsi
Ef þú átt nú þegar Bambahús er hægt að bæta við ræktunareiningu og stækka húsið.
Verð fyrir stækkun á eldra húsi fer eftir útfærslu, aðstæðum og þeirri þjónustu sem óskað er eftir. Leitið tilboða.
Mikilvægt um moldina
Í tvöfalt Bambahús fara um 1.600 kg af mold. Þyngd moldarinnar gegnir mikilvægu hlutverki í stöðugleika hússins.
Ef húsið er afhent án moldar þarf að tryggja það sérstaklega gegn vindi þar til gróðurkerin hafa verið fyllt með viðeigandi magni.
Leitið upplýsinga um aðra afhendingarmöguleika og verð.
Gæfa og gróðurríki!
Bambahús ehf.
Sími: 862 5008
Netfang: bambahus@bambahus.is
www.bambahus.is

